Í vatnsrúmi ná nemendur oftast að slaka vel á. Þeir liggja með kúlusæng ofan á sér og mismunandi sjónörvun á sér stað hverju sinni. Hægt er að varpa myndum á vegginn og láta mismunandi ljósaþræði loga um herbergið. Meta þarf hverju sinni lengd tímans en nemendur auka iðulega úthald sitt jafnt og þétt og læra að njóta kyrrðar og slökunar.
|
|