Hér er verið að vinna að uppbyggingu sérkennslutorgs. Torgið mun koma til með að miðla upplýsingum er varðar kennsluaðferðir, námsgögn og fleira sem tengist nemendum með sérþarfir.
Markmið
- Hér verður vettvangur til skoðanaskipta og ráðgjafar um hagnýtar aðferðir og gögn sem reynst hafa vel í kennslu með nemendum með sérþarfir.
- Leitast verður við að efla samskipti kennara þar sem þeir geta miðlað af reynslu sín á milli.
- Sérkennslutorg nýtist öllum þeim sem koma að kennslu með fjölbreytta námsörðugleika og sérþarfir í menntastofnunum landsins.
- Nemendur með fjölbreyttar sérþarfir eru í ríkari mæli að stunda sitt nám í sínum heimaskóla. Mikilvægt er að kennarar, þroskaþjálfar og annað starfsfólk fái góðan stuðning og aðgengi að efni og upplýsingum sem gagnast getur í kennslu nemenda með sérþarfir.
- Veittar verða upplýsingar, kennsluaðferðum miðlað, innsýn veitt í fjölbreytt námsumhverfi og sérkennurum gert kleift að finna styrk hver hjá öðrum á spjallborði óháð tíma og rúmi.
- Hér verður starfssamfélag á netinu sem gagnast öllum þeim sem koma að kennslu og umönnun nemenda með sérþarfir.
- Sérkennslutorg mun rjúfa einangrun þeirra sem starfa við sérkennslu víða um land.
- Það mun jafna aðstöðu kennara og skóla án tillits til staðsetningar, hvað varðar aðgengi að efni, tengslum og fræðslu
- Sérkennslutorgið tryggir nemendum með sérþarfir þann jöfnuð og mannréttindi sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum.
- Sérkennslutorg eykur samskipti á milli skólastofnana, kennara, foreldra og ráðgjafa um málefni er varðar nemendur með sérþarfir.