Þetta útitjáskiptaborð prýðir skólalóð Klettaskóla. Nemendur skólans sem ekki tjá sig með orðum geta nú, með þessu tjáskiptaborði sagt hvað þá langar til að gera í frímínútum auk þess að láta vita hvernig þeim líður og fleira. Rétturinn til tjáskipta er mikilvægur og því ber að hafa í huga að gera nemendum kleift að tjá sig hvar og hvenær sem er.
Námskeið hjá Endurmenntun Háskóla íslands
Hér má finna tengla á erindi og gagnlegt efni af námskeiði fyrir sérkennslustjóra á leiksólum sem haldið var af EHÍ þann 21. febrúar 2020
Erindi Hönnu Rúnar Eiríksdóttur
Á flipa hér sem kallast eyðublöð eru hægt að nálgast gagnleg eyðublöð sem hægt er að hlaða niður. Meðal annars eru hér aðgerðaráætlun og árstíðarbundin verkefni
Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir – Tjáskiptatækni
Nokkur umræða hefur átt sér stað varðandi skilgreiningu á AAC (Augmentative and Alternative Communication) Í gegnum árin hefur verið talað um óhefðbundnar tjáskiptaleiðir. Til að notast við þjálla orð þá hefur verið hallast að því að nota orðið tjáskiptatækni. Þó er það ekki svo að það lúti eingöngu að tækjum og tólum heldur er bent á að tækni okkar við tjáskipti almennt eru mismunandi. Hér má sjá skilgreininguna á orðinu og við notkun á orðinu tjáskiptatækni er tilvalið að stytta það í TST og nota myllumerki þegar það á við #TST
Tjáskipti með Communicator 5
Þann 13. febrúar næstkomandi verður haldið byrjendanámskeið í tjáskiptaforritinu Communicator 5
Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar:
Námsgögn af námskeiðinu “Starf sérkennslustjóra á leikskólum”
Síðastliðinn föstudag var námskeið fyrir Sérkennslustjóra í leikskólum hjá EHÍ
Hér eru tenglar á tvö erindi námskeiðsins:
Erindi um Starf sérkennslustjóra, Fjóla Þorvaldsdóttir
Erindi um Sérkennslutorg og tjáskipti, Hanna Rún Eiríksdóttir
Á flipa hér sem kallast eyðublöð eru hægt að nálgast gagnleg eyðublöð sem hægt er að hlaða niður.
Communicator 5 námskeið
Þann 29. mars næstkomandi verður grunnnámskeið í tjáskiptaforritinu Communicator 5. Áhugasamir geta skráð sig hér:
Námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
Starf sérkennslustjóra á leikskólum er námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Næsta námskeið verður haldið þann 8. febrúar næstkomandi. Kennarar eru Fjóla Þorvalsdóttir og Hanna Rún Eiríksdóttir. Enn er hægt að skrá sig en betri upplýsingar má finna hér
Fjölmörg önnur áhugaverð námskeið er að finna á vef Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Kynnið ykkur það hér
Sjónrænt skipulag
Í Klettaskóla nota nemendur sjónrænt skipulag. Útfærslan er með ýmsum hætti, útprentaðar töflur eða í spjaldtölvu. Smáforritið sem reynst hefur best er First Then Visual Schedule:
Hægt er að stilla hvernig sjónræna skipulagið birtist nemendum, allt eftir þörfum hvers og eins:
Á bakvið hverja mynd er hægt að setja myndband sem lýsir enn frekar þeirri athöfn sem myndin lýsir. Einfalt er að breyta myndum og bæta við svo það er hægt að bregðast við með litlum fyrirvara ef breytingar eiga sér stað á stundatöflu dagsins.
Rafræn gögn af námskeiði sérkennslustjóra hjá EHÍ
Bestu þakkir til þátttakenda á námskeiðinu um starf sérkennslustjóra á leikskólum í Endurmenntun Háskóla Íslands þann 9. febrúar síðastliðinn.
Hér er hægt að nálgast rafræn gögn af námskeiðinu:
Glærur Fjólu Þorvalds starf sérkennslustjóra
Glærur Hönnu Rúnar um Sérkennslutorg og tengt efni
Eyðublöð sem gott er að nota til hagræðingar í starfinu.
Kennsluhefti um Outlook póstkerfið