Áhugavert námskeið hjá Mímir símenntun.
Viltu geta lesið fjölbreyttan texta þér til gagns og ánægju?
Lærðu að nota upplýsingatæknina til að hjálpa þér að öðlast færni í lestri og ritun.
Áhugavert námskeið hjá Mímir símenntun.
Viltu geta lesið fjölbreyttan texta þér til gagns og ánægju?
Lærðu að nota upplýsingatæknina til að hjálpa þér að öðlast færni í lestri og ritun.
Starf sérkennslustjóra í leikskólum
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu viðfangsefni sérkennslustjóra í dagsins önn. Námskeiðið á að vera praktískt og til þess gert að sérkennslustjórar geti einnig miðlað af eigin reynslu og þekkingu. Þannig er námskeiðið jafnt ætlað þeim sem hafa starfað lengi sem sérkennslustjórar og þeim sem hafið nýhafið störf – og öllum þeim sem eru mitt á milli.
Á námskeiðinu verður fjallað um starf sérkennslustjóra og rætt út frá helstu viðfangsefnum hvernig hægt er að auðvelda sér starfið með góðu skipulagi og aðstoð upplýsingatækninnar. Námskeiðið verður bæði í formi fyrirlestra og vinnustofu. Gefið verður gott rými fyrir umræður þannig að þátttakendur geti skipst á hugmyndum og reynslu.
Gott er að hafa spjaldtölvu eða fartölvu meðferðis.
Nánari upplýsingar og skráning hér
Námsstefnan er sérstaklega ætluð kennurum, stuðningsaðilum sérstofnana, heilbrigðis- þjálfunarstéttum, foreldrum og öðrum sem starfa með börnum og fullorðnum, auk annarra áhugasamra.
Námsstefnan verður á Grand Hóteli frá kl 9:00 til 16:00. Unnt er að sækja hálfan dag ef óskað er eftir frá kl 09:00 til 12:00 eða 13:00 til 16:00. Verð aðeins 21.900 kr (allan daginn). Verð 14.900 kr (hálfur dagur).
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar verður Rebecca Bright talmeinafræðingur og frumkvöðull á sviði tækni og tjáskipta. Hún er meðstofnandi fyrirtækisins Therapy Box sem hefur sérhæft sig í gerð smáforrita sem nýtast mjög víða í starfi skóla, sérdeilda og heilbrigðisstofnana. Þá verður á ráðstefnunni fjöldi áhugaverðra fyrirlestra, kynningar á nýjum íslenskum smáforritum og fjallað um bestu leiðir til að innleiða smáforrit í kennslu og þjálfun.
Hér á torginu er umfjöllun um augnstýringu. Sagt hefur verið frá upphafsskrefunum og svolítið um þróunina sem orðið hefur. Emma Lilja sem er að nota þennan búnað hefur verið að leysa ýmis verkefni með augunum.
Eitt af því sem áhugavert er að athuga er hvort hún þekki orðmyndina sína og bekkjarfélaga sinna. Hér má sjá þegar hún fékk í fyrsta sinn þetta verkefni:
Í gær var haldið námskeið með sérkennslustjórum í leikskólum í Endurmenntun Háskóla Íslands. Efni námskeiðsins er nú komið inn á Sérkennslutorgið undir flipa sem merktur er “Fróðleikur” einnig er hægt að smella hér
Þátttakendum er þakkað fyrir einstaklega ánægjulegan dag.
Í samstarfi við Félag leikskólakennara
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu viðfangsefni sérkennslustjóra í dagsins önn. Námskeiðið á að vera praktískt og til þess gert að sérkennslustjórar geti einnig miðlað af eigin reynslu og þekkingu. Þannig er námskeiðið jafnt ætlað þeim sem hafa starfað lengi sem sérkennslustjórar og þeim sem hafið nýhafið störf – og öllum þeim sem eru mitt á milli.
Á námskeiðinu verður fjallað um starf sérkennslustjóra og rætt út frá helstu viðfangsefnum hvernig hægt er að auðvelda sér starfið með góðu skipulagi og aðstoð upplýsingatækninnar.
Námskeiðið verður bæði í formi fyrirlestra og vinnustofu. Gefið verður gott rými fyrir umræður þannig að þátttakendur geti skipst á hugmyndum og reynslu.
Námskeiðið verður haldið á húsnæði Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7, þann 11. janúar 2016
Hér er gott dæmi um gagnlega notkun á snjalltöflu í samverustund.
Nemendur í þriðja bekk í Klettaskóla eru hér í samverustund. Hefur þetta reynst einstaklega vel og nemendur taka virkan þátt. Þeir fara vel yfir daginn í upphafi dags, það veitir þeim öryggi og búa þá vel undir skóladaginn. Að auki leysa þeir ýmis verkefni sem tengjast dagasögum ofl.
Hér má sjá nánari umfjöllun sem og seinni hluta samverustundarinnar
Áhugavert námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. PEERS, Certified Training for mental health professionals and educators. Námskeiðið fer fram á ensku, dagana 9. 10. og 11. desember 2015. Snemmskráning fer fram til og með 13. október og tryggir það betra verð. Hér má skoða nánar upplýsingar um námskeiðið:
Talþjálfun Reykjavíkur stendur fyrir ráðstefnu þar sem talmeinafræðingar og fagfólk úr skólasamfélaginu leggja sitt af mörkum í umræðu um mál og læsi. Meðal annars verða erindi um smáforrit, tæki og tól sem börn nota daglega.
Allt það nýjasta sem í boði er fyrir málþroska framburð hljóðkerfisvitund og læsi.